Fjölgun hryðjuverka?

Ég er mest hrædd um að stórfelld aukning hryðjuverka myndi orsakast vegna tilkomu svona véla. Ekki jákvæð þróun hvað það varðar...
mbl.is Ómönnuð þyrla stelur senunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æj Steingrímur minn...

Steingrímur J Sigfússon lét þessi orð falla, eða öllu heldur missti þau út úr sér, á fundi á Egilsstöðum í vikunni. Það varð fjöldi manns vitni að því og hann getur ekki þrætt fyrir það. Eftirá bað hann fólk síðan vinsamlegast um að steinþegja yfir þessu en þar sem þetta gerðist korter fyrir kosningar, þá hefði hann ekki átt að búast við því að fólk léti þetta sem vind um eyrun þjóta.

Hann ætlar kannski að neita þessu núna, en hann sagði þetta nú samt.


mbl.is Tilhæfulaust að ríkið taki Icelandair yfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ánægð með niðurstöður Framsóknarflokksins

Heyr heyr! Eina vitið.

Það er fáránlegt að hafna ESB alfarið, hafna viðræðum. Að samþykkja aðildaviðræður er ekki það sama og að samþykkja inngöngu. Við þurfum að vita hvað er í boði og við fáum ekki að vita það nema hefja viðræður. Svo einfalt er þetta. 

Ánægð með framsóknarflokkinn.. ánægð með þessi tímamót í sögu hans og vona að þetta marki nýtt upphaf.


mbl.is Framsókn vill sækja um ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar eru þessir ólátabelgir?

Ég er aalltaf í þessum miðbæ og verð aaaldrei vör við "eril lögreglunnar". En það er nú kannski bara jákvætt... þá er allavega ekki verið að ráðast á mig á meðan...
mbl.is Mjög erilsöm nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

First we rape you, then we eat you!

Man nú ekki nákvæmlega söguna... en tæplega enskumælandi menn áttu að vera að hjálpa túristum með bílinn. Æltuðu að tjá þeim að fyrst myndu þeir binda reipi í bílinn hjá þeim og síðan myndu þeir ýta. Tókst ekki betur til en svo að útskýra gjörðir sínar.... först ví reip jú, ðenn ví ít jú!
mbl.is Ísrael mun éta Íran upp til agna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vænlegur til vinnings

Þetta þykir mér aldeilis góður kandidat í embætti borgarstjóra... strippbúllukóngur sem ræðst á fjölmiðla. Hann fengi ekki mitt atkvæði ef ég væri bankokisti...
mbl.is Frambjóðandi kýldi fréttamann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svoooona nálægt því að lenda í tveimur..

Ætlaði ekki að þora útí bíl og í skólann í morgun... en mannaði mig uppí það. Var óótrúlega nálægt því að lenda í 2 árekstrum... en það slapp. Sá fjóra bíl stopp eftir væga árekstra. Andskotans hálka... snjórinn er yndislegur en þessi hálka er verkfæri mannsins sem á heima á neðri hæðinni..

Vona bara að það verði ekki alvarlegir árekstrar í þessu færi.


mbl.is Hrina árekstra í hálkunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uhm...?

Hver er ástæðan fyrir því að ég kemst bara inná íslenskar síður á netinu mínu núna? ...og kemst ekki inná msn messenger... hvað er uppi með það? :O

Vaaá.."frábært"

Stofnaður hefur verið silfursjóður fyrir reykvísk börn. Þetta finnst mér fáránlegt og engan veginn ásættanlegt. Hvað með önnur börn? Hvað með landsbyggðina?

Eeeekki hrifin af þessu. 


mbl.is Silfursjóður fyrir handboltann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú, ekki Björgúlfur?

Ohh hvað ég er sátt með þetta. Alveg hefði nú verið týpískt að Björgúlfur Thor hefði skokkað niðrí sjoppu rétt fyrir lokun á sölu lottómiða síðasta laugardag... og hefði asnast til að velja réttu tölurnar og fá 66 millur í viðbót í vasann.

Geeeyyyysilega sátt með að fólk, sem varla nær endum saman, hreppi svona vinning.... þó ég hefði nú alveg verið til í þetta sjálf, neita því ekki.


mbl.is Hjón með 3 börn fengu stóra vinninginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband